16.03.1923
Neðri deild: 21. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 960 í C-deild Alþingistíðinda. (2758)

39. mál, vörutollur

Fjármálaráðherra (MagnJ):

Jeg vil aðeins leiðrjetta misskilning hjá háttv. 2. þm. Skagf. (JS) viðvíkjandi því, sem hann sagði um heyin í harðindunum og samgönguleysi. Það stendur á sama, hvaðan heyið er, þegar þörf er á því, en það getur verið erfitt að flytja innlent hey í harðindum, vegna ófærðar, fjallvega o. s. frv. þær tálmanir ná ekki til útlenda heysins. Það getur verið auðveldara og ódýrara að fá það á hafnir hjer við land.