23.03.1923
Efri deild: 25. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1097 í C-deild Alþingistíðinda. (2928)

34. mál, íþróttasjóður í Reykjavík

Jónas Jónsson:

Þetta stendur í nánu sambandi við annað mál, sem ekki hefir komið mikið til umræðu í deildinni enn þá, nefnilega um meðferðina á gróðanum af vínversluninni. Ef það frv. nær fram að ganga, kemur nokkur hluti fjárins til að renna í þennan sjóð. Jeg hefi talað um þetta mál við formann nefndarinnar, og leyfi jeg mjer að stinga upp á, að málið sje tekið út af dagskrá og sje látið bíða hjá nefndinni, uns fullvíst er, hvort íþróttasjóðnum áskotnast þannig tekjur eða ekki.