24.04.1923
Neðri deild: 49. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 60 í D-deild Alþingistíðinda. (3015)

125. mál, landmælingar og landsuppdrættir

Atvinnumálaráðherra (KIJ):

Hv. 4. þm. Reykv. (MJ) spurði um það, hvað mikið mundi þurfa að borga í dönskum krónum. Jeg er ekki við því búinn nú þegar að svara þessu svo ábyggilegt sje. Það er aðallega allur útbúnaður, sem mjer er ókunnugt um, hvað kosta muni. Fyrir því kýs jeg að fresta svarinu þar til jeg hefi aflað mjer þeirra upplýsinga, sem við þarf, og vænti jeg þess, að það geti orðið fyrir síðari umr. þessa máls, svo að jeg geti svarað því þá.