02.05.1923
Efri deild: 53. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 66 í D-deild Alþingistíðinda. (3030)

125. mál, landmælingar og landsuppdrættir

Jónas Jónsson:

Jeg er ánægður með þessar upplýsingar, það sem þær ná. Jeg bjóst ekki við að fá neinar töluupplýsingar. En það er eitt, sem jeg vildi gjarnan fá upplýsingar um. Það fer tvennum sögum um það, hvort foringi mælingamannanna hafi verið ánægður með þessa ráðabreytni, að minka mælikvarðann. Sumir segja, að hann hafi verið óánægður. Þetta getur vel verið að sje rangt, og er að vísu aukaatriði, en gott væri að fá vitneskju um það.