11.05.1923
Sameinað þing: 6. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 513 í D-deild Alþingistíðinda. (3240)
160. mál, vantraust á núverandi stjórn
Forsætisráðherra (SE):
Jeg tók það fram í dag, að jeg væri fylgjandi frjálsri verslun og hefði altaf verið það. En þar sem steinolíuverslunin jafnan hefir verið skoðuð sem nokkurskonar einokunarverslun í sjálfu sjer, þá hefir það hjer þótt geta samrýmst að vera með frjálsri verslun og fylgja þó einkasölu á steinolíu. Sjest þetta skýrt, ef lesnar eru umræðumar um lögin um einkasölu á steinolíu frá árinu 1917, og ekki síst af því, að maðurinn, sem bar þau fram, hefir jafnan fylgt frjálsri verslun.
Um síðustu ræðu hv. vantraustsflytjandans (EE) er það að segja, að það var í raun rjettri sama ræðan sem hann hefir altaf flutt hjer. Nenni jeg ekki að endurtaka öll rök mín móti þeim hjegóma. Því vil jeg þó lýsa yfir, að það eru hrein og bein ósannindi hjá hv. þm. (EE), að jeg hafi brotið nokkurt loforð við Framsóknarflokkinn. Eins og jeg hefi skýrt frá áður, þá kom ósk fram frá Framsóknarflokknum um að verkaskiftingin hjeldist óbreytt í stjórnarráðinu, en jeg lofaði engu um það, en tók beinlínis fram við ráðherrana, að breyting gæti orðið á verkaskiftingunni. (EE: Ráðherrann lofaði því víst).
Annars ætti hv. þm. (EE) ekki að tala með slíkum ákafa um bankamálið eins og hann nú gerir, því að vitanlegt er, að hann langaði mjög í bankastjórastöðuna. Ef það á að vera aðalefni vantraustsins, að jeg hefi sett góða menn í Íslandsbanka, þá fer margt að gerast undarlegt með þjóð vorri. (EE: Ein ástæðan sú, að í bankann hafa hvorki góðir nje illir verið skipaðir). Er það af öllum viðurkent, að þessir menn sjeu góðir.
Hv. þm. hafði það eftir öðrum þeirra, að hann hefði sagt sjer, að þeir ættu bágt með að neyta sín á meðan þeir væru aðeins settir. Jeg verð að leyfa mjer að bera brigður á, að þetta sje rjett haft eftir. (EE: Jú, það er rjett). Hafa þessir menn báðir gegnt ábyrgðarmiklum störfum áður og munu hafa fulla einurð til að standa fyrir máli sínu. Enda trúi jeg ekki þeim manni fyrir embætti sem skipuðum, sem ekki hefir fulla einurð til þess að gera það, sem rjett er, meðan hann er settur. (EE: Alt önnur aðstaða).
Hv. þm. (EE) fann að því, að jeg hefði ekki skipað bankastjórana. Jeg hefi margsvarað því, hvers vegna jeg hefi ekki gert þetta, og nenni ekki að endurtaka það. En jeg get bætt því við, að jeg álít bankastjóra Eggert Claessen ágætan mann í þessa stöðu. Mann, sem ber ekki síður hag landsins en hluthafanna fyrir brjósti. Bauð þessi maður mjer að fara frá bankanum án þess að krefjast nokkurs, en jeg vildi ekki missa hann.
Hv. þm. (EE) var að tala um stærsta stráið, sem vaxa mundi á þessu sumri. Jeg skal engu spá um það. En hitt veit jeg, að ekkert strá mun verða jafnblaktandi á þessu sumri eins og þessi hv. þm. (EE) hefir verið á þessu þingi. Hefir það sjaldan hent í hans þingsögu, að hann hafi verið sömu skoðunar í enda ræðunnar eins og í byrjun hennar. (EE: Eitt dæmi því til sönnunar). Hefir framkoma hv. þm. verið öll hin hlægilegasta og mundi vegur þingsins lítt aukast, ef það hefði marga sömu tegundar.