11.04.1923
Efri deild: 37. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 530 í D-deild Alþingistíðinda. (3254)
129. mál, húsmæðraskóli á Staðarfelli
Sigurður Jónsson:
Mjer skildist á hæstv. atvrh. (KIJ), að stjórninni væri ekki vel ljóst, undir hvaða stjórnardeild þessi skóli ætti að lúta. Mjer finst hann eiga að vera hliðstæður búnaðarskólunum, svo framarlega sem hann verður rekinn sem húsmæðraskóli, en ekki sem gagnfræðaskóli, eins og kvennaskólinn hjer virðist helst vera, þó að sjerstakt námsskeið sje fyrir hússtjórnarnemendur. Húsmæðraskóli ætti að vera jafnrjetthár og bændaskólar, og jeg vil líta svo á, að konur ættu að hafa jafnan styrk til að menta sig sem húsmæður eins og þeir karlmenn fá, sem eru í bændaskólum.
Það hefir komið fram till. um að vísa málinu til stjórnarinnar, og önnur um að vísa því til nefndar –mentmn. Jeg get ekki sjeð, að hverju leyti það mundi hnekkja úrslitum málsins, þótt svo væri gert. Mjer virðist sú till. aðgengileg, þó að hv. meðflm. minn (JJ) telji málið þegar nógu vel undirbúið. Nefndin getur þó enn þá betur útskýrt það, og mun jeg því geta greitt atkvæði með þessari till.