08.05.1923
Sameinað þing: 4. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 592 í D-deild Alþingistíðinda. (3329)

111. mál, Ríkisveðbanki Íslands

Flm. (Jón Baldvinsson):

Við umræðurnar um jarðræktarlögin gaf hæstv. atvrh. (KIJ) þá yfirlýsingu, að Ríkisveðbankinn myndi taka til starfa eigi síðar en um næsta nýár. En till. mín var þá komin fram, er hæstv. ráðherra gaf yfirlýsingu þessa. Hefði jeg því vel getað látið vera að koma með hana, en úr því hún er nú á annað borð komin til umr., þætti mjer vænt um að heyra, hvað stjórnin segir nú um þetta mál.