01.03.1923
Neðri deild: 9. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 637 í D-deild Alþingistíðinda. (3353)
27. mál, verðgildi íslenskrar krónu
Sveinn Ólafsson:
Umræðurnar um þessa till. til þál., sem hv. 2. þm. Reykv. (JB) hefir komið fram með, hafa farið nokkuð á víð og dreif og lent inn á helst til breiðar brautir. Finst mjer það benda til þess, að till. þessi sje þm. ekki nægilega kunn enn þá eða þeir búnir að átta sig á efni hennar. Býst jeg við, að forlög till. verði mjög tvísýn, ef hún verður afgreidd að svo stöddu. Og þar sem svo stendur á, að næsta mál á dagskrá er náskylt henni og efni þess þegar komið inn í umræðurnar, en úrslit till. mjög háð afdrifum þess, þá legg jeg það til, að frekari umr. um till. sje frestað og henni vísað til fjárhagsnefndar, en næsta mál tekið fyrir. Er þetta mál nú komið á þann rekspöl, að ekki er að vænta, að frekari umr. leiði til neinna æskilegra úrslita.