20.03.1923
Neðri deild: 24. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 274 í B-deild Alþingistíðinda. (341)

21. mál, ríkisskuldabréf

Fjármálaráðherra (MagnJ):

Jeg er þakklátur nefndinni fyrir góðar undirtektir við þetta frv. Háttv. frsm. (JakM) lýsti efni þess og stefnu til hlítar. Það er rjett, að með frv. er sett aðhald til þess að taka minni háttar lán innanlands, og get jeg ekki sjeð fram á, að það þurfi að koma að skaða. heldur þvert á móti.