25.04.1923
Neðri deild: 50. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1978 í B-deild Alþingistíðinda. (35)

Afgreiðsla þingmála

Jón Þorláksson:

Jeg er samþykkur því, að þingnefndir skili af sjer málum sem fyrst; en þetta heyrir undir hæstv. forseta og vinnunefnd deildarinnar, en eigi undir deildarmenn. Viðvíkjandi allsherjarnefnd skal jeg geta þess, út af tilmælum háttv. 2. þm. Reykv. (JB), að nefndin hefir afgreitt í nefndaráliti mál það, er hann ber fyrir brjósti, og kemur fram með till. til þál. um það efni. Getur nefndin ekki afgreitt það mál á annan hátt.