09.05.1923
Efri deild: 58. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 341 í B-deild Alþingistíðinda. (390)

92. mál, hlunnindi

Karl Einarsson:

Jeg get tekið undir með hæstv. forsrh. (SE), að rjett sje að láta málið koma til 2. umr. nú. en athuga þá nál. minni hlutans við 3. umr.

Jeg hefi vitanlega skrifað undir nál. meiri hlutans, en jeg mun fá þær upplýsingar á morgun, sem vel má vera, að hafi það í för með sjer, að jeg geti ekki verið með frv. út úr deildinni.