11.05.1923
Efri deild: 59. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 355 í B-deild Alþingistíðinda. (401)
92. mál, hlunnindi
Frsm. minni hl. (Sigurður Jónsson):
Eins og hv. deildarmönnum er kunnugt frá 2. umr. þessa máls, þá skiftist fjhn. í meiri og minni hl. um frv. þetta. Urðum við hv. 1. þm. Húnv. (GÓ) í minni hl., og liggur nú frammi nál. minni hl. á þskj. 614. Hv. meiri hl. skýrði við 2. umr. frá sinni afstöðu í málinu, en til þess að tefja ekki tímann, læt jeg nægja að vísa til nál. meiri hl. Þar er ekki talað um, að nein vissa sje fengin fyrir því, að hlutafje fáist, og virðist minni hl., að hv. meiri hl. hafi lagt of litla áherslu á þetta atriði. Auk þess virðist oss, sem forstöðumennirnir fyrir þessari bankastofnun hefðu átt að vera búnir að leita sjer upplýsinga um þetta atriði áður en þeir leituðu stofnunarheimildarinnar.
Viðvíkjandi 4. tölulið nál. minni hl. vil jeg geta þess, að jeg tel efasamt, hvort bankinn gæti orðið innlend eign, eins og fjárhag landsins er varið.
Að öðru leyti læt jeg nægja að vísa til nál. minni hl. og ítreka aðeins, að jeg álít ekki heppilegt, að málið fái fram að ganga á Þessu þingi, heldur verði það betur undirbúið fyrir næsta þing.