11.05.1923
Efri deild: 59. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 357 í B-deild Alþingistíðinda. (404)

92. mál, hlunnindi

Frsm. minni hl. (Sigurður Jónsson):

Jeg get verið hv. 2. þm. G.-K. (BK) sammála um það, að ekki0404

þýði að ræða þetta mál frekar, og vil jeg ekki verða þess valdandi, að langar umræður hefjist. en um ósamræmið, sem sami háttv. þm. talar um, get jeg ekki verið honum sammála, því að allir munum vjer þekkja, að ekki er aðeins verslað með það, sem kallað er víst heldur oft einnig með það sem er óvíst, nefnilega það, sem kallað er að versla með vonina.

Orðlengi jeg svo ekki frekar um þetta mál.