08.05.1923
Sameinað þing: 4. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 436 í B-deild Alþingistíðinda. (506)
18. mál, varnir gegn kynsjúkdómum
Jónas Jónsson:
Þegar þetta frv. var á ferðinni í Ed., var jeg ekki alls kostar ánægður með það. Jeg vildi láta verja nokkru fje til almennrar fræðslu um þessi efni. Jeg álít, að aðalvörnin sje í því fólgin, að þjóðin þekki eðli þessara sjúkdóma og orsakir. Þetta er engin nýung; erlendis eru meðal annars kvikmyndir notaðar til fræðslu. En tillögur mínar um fræðslu í þessu efni voru feldar í Ed.; meiri hlutinn bygði á öðrum grundvelli.
Jeg skal taka það fram viðvíkjandi þessari brtt., að jeg fellst á það með háttv. 3. þm. Reykv. (JÞ), að það sje rjett og eðlilegt að hafa sem mest aðhald með því, hverjir bera ábyrgðina á smitun. Lög þessi leggja þunga kostnaðarbyrði á þjóðfjelagið, og þjóðfjelagið á heimtingu á því að fá í stað kostnaðarins tryggingu fyrir því, að hægt sje að halda þessum sjúkdómum í skefjum, og mönnum sje ekki af vatnsgrautarmiskunnsemi látið haldast uppi að útbreiða þessa hættulegu sjúkdóma.