02.03.1923
Neðri deild: 10. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 33 í B-deild Alþingistíðinda. (51)

35. mál, dómþinghár

Flm. (Jón Auðunn Jónsson):

Eins og háttv. deild mun hafa sjeð af ástæðum fyrir þessu frv., þá hefir nú Mosfellshreppi verið skift í tvö hreppsfjelög. Þar sem nú hreppsnefndir þessara hreppa hafa óskað eftir því, að hver hreppur skuli hafa sína sjerstöku dómþinghá, sje jeg ekki ástæðu til annars en verða við þeirri ósk. Jeg hefi svo ekki meira að segja um þetta, en leyfi mjer að leggja það til, að frv. verði, að lokinni umr., vísað til allshn. Jeg skal taka það fram, að jeg er samþykkur brtt. þeirri, sem komið hefir fram við frv.