09.04.1923
Neðri deild: 37. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 623 í B-deild Alþingistíðinda. (646)
1. mál, fjárlög 1924
Jón Auðunn Jónsson:
Jeg verð að mótmæla því, að eins standi á um Landsbankann og tóbaksverslun ríkisins. Hún er stofnuð aðeins með það eitt fyrir augum að afla ríkissjóði tekna: en Landsbankinn er stofnaður til eflingar atvinnuvegum landsins og annara þjóðþrifa. Þess vegna er ekki hægt að bera hann saman við stofnanir, sem aðeins eru til að afla tekna á einhvern hátt fyrir ríkissjóð. Jeg hygg og enga þingnefnd vera svo færa, að hún geti áætlað, hversu marga starfsmenn þurfi við Landsbankann. Aftur á móti væri þetta auðvelt að því er snertir verslanir ríkisins. t. d. tóbaks- og vínverslanirnar. Því vil jeg taka undir með háttv. frsm. fjvn. (MP), að betra væri, að þetta næði að ganga fram, og gott, að nefndirnar fái skýrslur um mannahald og fleira við þessar stofnanir, sem aðeins eru til að afla ríkissjóði tekna. Hvað steinolíuverslunina snertir, er það ekki sæmandi, að hún sje þannig misnotuð, að ætlast sje til, að hún afli ríkissjóði tekna. (MK: Það er svo ákveðið í lögunum). Háttv. þm. Ak. (MK) þarf ekki að fræða mig um það, til hvers lögin ætlist í þessu efni.