19.02.1923
Sameinað þing: 1. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 16 í B-deild Alþingistíðinda. (8)

Rannsókn kjörbréfa

Frsm. 3. kjördeildar (BJ):

Það fjell í hlut 3. kjördeildar að rannsaka kjörbrjef Jónasar Jónssonar, og kjördeildin gerir það að till. sinni, að kosning hans verði samþykt. Eins var kjördeildin á sama máli og háttv. frsm. 1. kjördeildar (JóhJóh) um töluröðina.