30.04.1923
Efri deild: 51. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1058 í B-deild Alþingistíðinda. (811)

1. mál, fjárlög 1924

Guðmundur Guðfinnsson:

Jeg ætla að lýsa því yfir, að jeg tek till. mína á þskj. 482 aftur að sinni, en það getur verið, að hún komi fram seinna. Þá vil jeg geta þess, að jeg felli mig ekki við brtt. nefndarinnar um að fella burt ábyrgðarheimildina til Sláturfjelags Suðurlands. Jeg veit, að fje er ekki fyrir hendi, en jeg sje ekki betur en að munur sje á ábyrgð og láni, og gæti því heimildin komið að fullum notum. Jeg mun því greiða atkvæði á móti till.