09.05.1923
Efri deild: 58. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1155 í B-deild Alþingistíðinda. (858)

1. mál, fjárlög 1924

Jóhannes Jóhannesson:

Jeg get ekki verið sammála hæstv. forsrh. (SE), því ef litið er á 1. brtt. fjvn., þá er hún hvorttveggja í senn, nokkurt fjárhagsspursmál, en þó einkum „princip“-spursmál. Ef á að bæta einum flokki starfsmanna ríkisins, þá verður óhjákvæmilegt að bæta fleirum upp, sem alveg eins stendur á um.