11.05.1923
Sameinað þing: 5. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1162 í B-deild Alþingistíðinda. (869)

1. mál, fjárlög 1924

Jakob Möller:

Jeg skal taka það fram, út af athugasemd háttv. þm. Seyðf. (JóhJóh), að mjer er eigi kunnugt um afstöðu háttv. fjvn. Ed., en mjer er kunnugt um, að í fjárveitinganefnd Nd. eru skiftar skoðanir um till., svo að þetta, að báðar fjárveitinganefndirnar sjeu sammála um till., á væntanlega að skiljast þannig, að nokkrir menn í báðum nefndum sjeu sammála.