03.05.1923
Neðri deild: 56. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1169 í B-deild Alþingistíðinda. (880)
54. mál, stækkun lögsagnarumdæmis Reykjavíkur
Frsm. (Jón Þorláksson):
Jeg veit ekki, hvort það er til of mikils mælst, að frv. þetta með brtt. nefndarinnar gangi umræðulaust til 3. umr. Allsherjarnefnd hefir gert grein fyrir undirbúningi málsins, og sýnist mögulegt að láta þær umræður, sem frv. þarfnast, fara fram við 3. umr.