23.04.1923
Neðri deild: 48. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1212 í B-deild Alþingistíðinda. (991)
120. mál, veiting ríkisborgararéttar
Frsm. (Magnús Jónsson):
Jeg ætla aðeins að láta þess getið, að nefndin hefir með viðbótartill. lagt til, að öðrum manni til sje veittur íslenskur ríkisborgararjettur, nefnilega símaverkstjóra Chr. E. Björnæs. Mæla alveg sömu ástæður með þessum manni og þeim fyrri. Nefndin hefir aflað sjer fullnægjandi upplýsinga um báða þessa menn, meðal annars frá aðalræðismanni Norðmanna hjer, og finnur ekkert athugavert við að veita þeim íslenskan ríkisborgararjett. Leggur nefndin því til, að frv., svo breytt, verði samþykt.