12.04.1924
Neðri deild: 49. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1710 í B-deild Alþingistíðinda. (1151)

59. mál, friðun rjúpna

Frsm. meiri hl. (Björn Líndal):

Jeg vil aðeins taka það fram, að nefndin mun fyrir 3. umr. taka til athugunar það, sem hæstv. atvrh. (MG) sagði áðan um nauðsynina á sektarákvæðunum. Sömuleiðis vil jeg geta þess, að ein miðlunarleið er hugsanleg í máli þessu, sú, að stjórninni sje gefin heimild til að friða rjúpuna ár og ár, eftir því sem þörf er á í hvert skifti. Mun jeg sjá um, að það verði líka athugað í nefndinni.