29.04.1924
Efri deild: 57. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1951 í B-deild Alþingistíðinda. (1405)

61. mál, bæjargjöld í Reykjavík

Sigurður Eggerz:

Jeg vildi aðeins skjóta því til hæstv. stjórnar, hvort hún geti sagt nokkuð um það, hvenær þingi muni lokið. Ef það á ekki eftir að standa nema viku ennþá, þá sjá allir menn, að tími verður ekki nægur til að afgreiða frv., ef það á eftir að fara til hv. Nd. og svo í sameinað þing.