29.04.1924
Efri deild: 57. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1951 í B-deild Alþingistíðinda. (1406)

61. mál, bæjargjöld í Reykjavík

Forsætisráðherra (JM):

Jeg get ekkert um það sagt, hvenær þingi slítur. Það hefir ekkert verið um það ákveðið enn og fer það eftir atvikum. Annars geri jeg ráð fyrir, að hæstv. forseti Sþ. (JóhJóh) viti, hvernig störfum þingsins er komið, og hann hefir sagt, að tíminn verði nægur til þess að afgreiða þetta mál, þó að það fari í Nd. og sameinað þing.