26.04.1924
Neðri deild: 56. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2050 í B-deild Alþingistíðinda. (1473)

29. mál, hæstiréttur

Forseti (BSv):

Það er komin fram tillaga um að slíta umræðum, þegar þeir hafi talað, sem höfðu kvatt sjer hljóðs. En nú eru tvær nýjar brtt. komnar fram, önnur á þskj. 443, hin á þskj. 456, og þarf afbrigði frá þingsköpum til þess að leyft verði að ræða þær.