13.03.1924
Neðri deild: 22. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2098 í B-deild Alþingistíðinda. (1513)

67. mál, búnaðarlánadeild við Landsbanka Íslands

Jón Auðunn Jónsson:

Hv. flm. (TrÞ) óskaði þess, að mál þetta yrði látið ganga til landbn., með því hann taldi, að það væri meira landbúnaðarmál en bankamál. En þar sem málið er þó þannig vaxið, að það verður einnig að athugast frá sjónarmiði bankanna, og hinsvegar mörg slík mál til meðferðar í fjhn., þá vildi jeg skjóta því til hv. deildar, hvort hún teldi ekki rjettara að fá það þeirri nefnd í hendur.