13.03.1924
Neðri deild: 22. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2100 í B-deild Alþingistíðinda. (1516)

67. mál, búnaðarlánadeild við Landsbanka Íslands

Sigurjón Jónsson:

Jeg geri það í sjálfu sjer ekki að kappsmáli, að þetta mál fari til fjhn. En verði það látið ganga til landbn., þá vildi jeg mega skjóta því til hennar, að álitamál geti verið, ef lögfesta á fjárframlög sem þessi, hversu mikið fje megi taka frá hinum atvinnuvegunum til þessara framkvæmda. Og frá því sjónarmiði finst mjer líka, að málið sje fyrst og fremst fjárhagsmál.