22.04.1924
Efri deild: 52. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2183 í B-deild Alþingistíðinda. (1565)

67. mál, búnaðarlánadeild við Landsbanka Íslands

Jónas Jónsson:

Jeg vildi aðeins fyrir mitt leyti beina þeirri ósk til hv. landbn., sem væntanlega tekur þetta mál til meðferðar, að hún reyni að flýta fyrir afgreiðslu þess. Málið er eitt hið þýðingarmesta, sem fyrir þinginu liggur.