22.04.1924
Efri deild: 52. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2183 í B-deild Alþingistíðinda. (1566)

67. mál, búnaðarlánadeild við Landsbanka Íslands

Eggert Pálsson:

Jeg vil aðeins geta þess sem formaður landbn., að einn hinna þriggja nefndarmanna er veikur og óvíst, hvenær hann getur tekið þátt í nefndarstörfum. Vil jeg því gera fyrirspurn um, hvort það sje viðeigandi, að aðeins tveir nefndarmenn afgreiði málið. Jeg er ekki svo kunnugur þingsköpunum, að jeg geti sagt um, hvort það getur komið til mála.