18.03.1924
Neðri deild: 26. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2273 í B-deild Alþingistíðinda. (1691)
84. mál, aukaútsvör ríkisstofnana
Tryggvi Þórhallsson:
Jeg vildi segja nokkur orð, einkum vegna andmæla hv. 3. þm. Reykv. (JakM) gegn orðum hv. 1. þm. S.-M. (SvÓ). Mjer þykir vænt um, að þetta frv. er komið fram, eins og þeim hv. þm. (SvÓ), og stend næst honum í málinu. Hv. 1. þm. Skagf. (MG) vill með sínu frv. takmarka skattskyldu þessara stofnana ríkisins, sem hjer ræðir um, til bæjarsjóðs. En hinssvegar telur hann, og eins hv. 3. þm. Reykv., að teknar hafi verið tekjur af bæjarsjóði með tóbakseinkasölunni, og því rjett, að bærinn fái nokkurn skatt frá þessari stofnun í staðinn. Þetta finst mjer alveg rangt. Það mætti þá alveg eins hugsa sjer, að póstmálin og síminn væru fengin til rekstrar einstökum mönnum, og þá ætti bæjarsjóður vitanlega að fá skatt af þessum rekstri. Mjer sýnist því, að næsta sporið verði það, að leggja útsvar á þessa starfrækslu ríkisins, eftir þessum röksemdum að dæma.
Þá vil jeg, að gjaldið, sem frv. tiltekur, verði lækkað, eins og hv. 1. þm. S.-M. talaði um, ef 2. gr. frv. er ekki feld niður, sem væri rjettast.