21.03.1924
Neðri deild: 29. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 420 í C-deild Alþingistíðinda. (2055)

91. mál, skipun barnakennara og laun þeirra

Forseti (BSv):

Það, sem hv. 1. þm. Skagf. skírskotaði til, kemur ekki í veg fyrir, að hægt sje að vísa frv., sem nefnd flytur, til annarar nefndar, þó að hún sje því mótfallin. Aftur á móti er öllum auðvitað heimilt að greiða atkv. á móti því, að frv., sem nefnd flytur, sje vísað til annarar nefndar.