21.03.1924
Neðri deild: 29. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 421 í C-deild Alþingistíðinda. (2056)
91. mál, skipun barnakennara og laun þeirra
Tryggvi Þórhallsson:
Jeg get tekið undir með hv. frsm. (MG), að fjvn. fylgir þessu máli allfast. En jeg sje enga ástæðu til að ætla, að hv. mentmn. muni leggjast á málið, þó að því yrði vísað til hennar, og gæti jeg því fallist á það, ef jeg fengi orð frá nefndinni, að hún muni afgreiða málið fljótt. Aftur mundi jeg ekki geta unað því, að nefndin saltaði málið.