02.04.1924
Neðri deild: 40. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 687 í B-deild Alþingistíðinda. (206)

1. mál, fjárlög 1925

Fjármálaráðherra (JÞ):

Jeg vil geta þess, að það er ástæðulaust fyrir hv. þm. að þrefa út af formi landhelgissjóðslaganna. Til þess að sameina alla um þetta mál, vil jeg mæla með því, að brtt. hv. 3. þm. Reykv. (JakM) verði samþykt.

Athugasemd háttv. 1. þm. Árn. (MT) var jeg búinn að svara að fullu fyrirfram.