07.04.1924
Efri deild: 42. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 695 í B-deild Alþingistíðinda. (211)

1. mál, fjárlög 1925

Fjármálaráðherra (JÞ):

Jeg vil einungis leyfa mjer að bera fram þá ósk, að þessi hv. deild vilji í meðferð fjárlaganna sýna sömu varfærni við útgjöld ríkissjóðs eins og hv. Nd. hefir sýnt. Um ástæðurnar fyrir þessari ósk vil jeg vísa til skýrslunnar um fjárhag landsins frá hæstv. fyrv. fjrh. (KlJ) við 1. umr. fjárlaganna í hv. Nd. og minnar skýrslu við 3. umr.