20.03.1924
Neðri deild: 28. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 501 í C-deild Alþingistíðinda. (2154)

96. mál, bann gegn botnvörpuveiðum

Forsætisráðherra (SE):

Jeg vil leyfa mjer að skýra frá því, að kærur þessar hafa verið sendar til hlutaðeigandi dómara. Um frv. sjálft skal jeg ekki orðlengja, geri ráð fyrir, að það fari til hv. sjútvn., og býst við hin nýja stjórn muni eiga tal við hana um málið.