22.04.1924
Neðri deild: 53. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 516 í C-deild Alþingistíðinda. (2170)

96. mál, bann gegn botnvörpuveiðum

Forseti (JAJ):

Vegna ummæla hv. þm. Borgf. vil jeg geta þess, að þetta mál hefir tafist undanfarna daga af alveg eðlilegum ástæðum. Það hefir ekki gefist tími til þess að ljúka dagskrá. En þó málið af þessum ástæðum komi síðar til umr. en til var ætlast í fyrstu, þá hefir það alls ekki komist að seinna en ástæður voru til, eins og hv. þm. (PO) getur sannfært sig um með því að athuga dagskrár undanfarinna funda.