16.04.1924
Efri deild: 51. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 803 í B-deild Alþingistíðinda. (237)
1. mál, fjárlög 1925
Jóhann Jósefsson:
Aðeins örfá orð út af þeim orðum hv. frsm., að fjvn. hefði ekki athugað þær ástæður, er lágu til grundvallar fyrir því, að sjávarútvegsnefnd Nd. hækkaði laun þriggja yfirfiskimatsmannanna af fimm. Jeg hefi átt tal við tvo úr nefndinni, og sagði annar þeirra, að það hefði verið farið eftir stærð umdæmisins, en hinn sagði, að miðað hefði verið við embættisaldur. Eftir þessu verð jeg að líta svo á, að sú grundvallarregla, sem nefndin hefir bygt á, hljóti eitthvað að vera á reiki. Annars lít jeg svo á, að vel mætti fara eftir fiskmagni því, sem gengur í gegnum hendurnar á hverjum þeirra, og árið 1923 var það sem hjer segir:
í Vestfirðingafjórðungi ... 28 þús. skp.
— .Vestmannaeyjum 26 — —
— Austfirðingafjórðungi ... 20 — —
— Norðlendingafjórðungi ... 16 — —
Jeg held því, að hjer sje, að minsta kosti ekki hvað Vestmannaeyjar snertir, ekki svo miklu sem munar, að rjett hafi verið af sjútvn. að gera svona mikið upp á milli þessara manna. Ætti því þessi hv. deild að bæta úr þessu misrjetti.