08.04.1924
Neðri deild: 45. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1039 í C-deild Alþingistíðinda. (2534)
58. mál, stofnun háskóla
Ásgeir Ásgeirsson:
Jeg skal ekki svara þessu með langri ræðu. Jeg skal aðeins benda á, að þetta tal um það, hvernig bókmentir verði til, stafar af því, hversu háttv. 4. þm. Reykv. (MJ) talaði mjög um þetta. Jeg hrek þessa ræðu hans með því að spyrja, hvaða „klassisk“ rit háskólinn hafi framleitt. Það er satt, sem hv. þm. (MJ) sagði, að þau eru yfirleitt sjaldgæf úr þeirri átt, og þessvegna átti hann alls ekki að vera að rugla bókmentunum inn í þetta mál. Jeg vil leiðrjetta þann misskilning hans, að í þessu landi sjeu til sjerstakar mentunargreinir, alþýðumenning og æðri mentun; það má vel vera, að hjer greinist eitthvað í sundur á sumum sviðum, en hvað sem um það er, er alþýðumenningin okkar æðri menning. Hún er það, sem alt hið ágætasta í okkar bókmentum og listum hefir vaxið upp úr.