28.04.1924
Neðri deild: 57. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1147 í C-deild Alþingistíðinda. (2601)

42. mál, einkasala á áfengi

Sigurjón Jónsson:

Jeg vil aðeins taka undir orð hv. þm. Ak. (BL) um steinolíusamninginn. Er mjer vel kunnugt um, að verslunin með steinolíu hefir þótt mjög óhagstæð landsmönnum. Býst jeg við, að ekki verði of mikið af því sagt. Væri máske við annað tækifæri hægt að fara betur út í það mál, en hjer er ekki tími til þess. Þó vildi jeg ekki láta hjá líða að koma með þessa athugasemd, einkum þar sem mjer er ljóst, að jeg er miklu bærari um að dæma um þetta atriði heldur en hv. 2. þm. Rang. (KlJ).