06.05.1924
Efri deild: 65. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1170 í C-deild Alþingistíðinda. (2629)

42. mál, einkasala á áfengi

Jóhannes Jóhannesson:

Jeg hefi ekki sagt neitt um að festa áfengisverslunina eða núv. forstjóra hennar við hana. Ráðningartími núv. forstjóra er útrunninn um næstu áramót. Þó vil jeg, að svo stöddu, ekki láta lögákveða að leggja forstjórn áfengisverslunarinnar undir forstjóra landsverslunarinnar. (JJ: Af því að ekki er stolið þar! — BK: Rannsókninni í áfengisversluninni er enn ekki lokið.)