05.05.1924
Neðri deild: 63. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1263 í C-deild Alþingistíðinda. (2741)

83. mál, fátækralög

Atvinnumálaráðherra (MG):

Jeg vildi aðeins leiðrjetta lítið eitt það, sem hv. 2. þm. Reykv. (JBald) sagði. Það er rjett, að jeg hefi hjálpað til að færa brtt. í sæmilegt form, en þar með er ekkert sagt um afstöðu mína til þessa máls. Mjer sýnist meiningarlaust að hefja nú umræður um þetta mál, sem sýnilegt er, að ómögulegt er að koma fram á þessu þingi. Og hv. þm. eru nú önnum kafnir við að búa sig af stað og hafa því öðru að sinna en gagnslausum umr.