05.05.1924
Neðri deild: 65. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1266 í C-deild Alþingistíðinda. (2746)

83. mál, fátækralög

forseti (BSv):

Eins og deildinni er kunnugt, hefir mjer borist áskorun frá sjö þm. um að taka hjer sem fyrsta mál á dagskrá frv. til laga um viðauka við og breytingu á fátækralögum 10. nóv. 1905 (118, n. 229 og 244,482) til frh. 2. umr., og vil jeg bera undir atkvæði hv. deildar, hvort málið skuli nú tekið á dagskrá.