26.02.1924
Neðri deild: 8. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1312 í C-deild Alþingistíðinda. (2819)
32. mál, vörutollur
Ágúst Flygenring:
Jeg vil aðeins skjóta því að þeirri hv. nefnd, sem væntanlega fær frv. þetta til meðferðar, að taka þyrfti upp í frv. ákvæði um það, að sumar vörutegundir, sem endurfluttar yrðu inn í landið, svo sem kjöt o. fl. yrðu þá fluttar inn tollfrítt. Að öðru leyti finn jeg ekki ástæðu til að ræða frv. þetta frekar á þessu stigi málsins.