09.04.1924
Neðri deild: 46. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 44 í D-deild Alþingistíðinda. (2892)
103. mál, endurheimt ýmsra skjala og handrita
Flm. (Tryggvi Þórhallsson):
Það skulu aðeins verða örfá orð. Jeg get tekið undir með báðum hv. ræðumönnum, 2. þm. Rang. (KlJ) og 4. þm. Reykv. (MJ), um að fara með gætni og stillingu í þetta mál, enda hafa heldur engin orð fallið frá mjer um að sýna Dönum nokkra ósanngirni í þessu. Jeg hefi þvert á móti margendurtekið orð Hannesar Þorsteinssonar um þetta: „Vjer viljum ekki beita neinni ósanngirni í þessu, en rjett vorn viljum vjer hafa óskertan“. En þótt við förum með stillingu að í þessu, hafa þó báðir síðustu ræðumenn viðurkent, að við eigum skýlausan rjett til þessa, og get jeg því ekki viðurkent, að rjett sje, að þetta mál verði látið falla niður fyrir það eitt, þótt meirihluti skjalavarðanna í Khöfn, einhverjir gamlir menn, vilji eigi viðurkenna rjett okkar og neiti að láta þetta af hendi við okkur. Við verðum þá að sækja á með einhverjum harðari aðferðum, og ef þetta stendur aðeins á einhverjum gömlum skjalavörðum, sem þykir svo vænt um þetta, að þeir vilja ekki sleppa því þessvegna, verður stjórnin að láta til sín taka um þetta mál, og þótt þetta fáist ekki af forstöðumönnum safnanna, mundi þó vera hægt að sýna stjórninni sjálfri í Danmörku fram á, hvað rjett er í þessu máli. Og við krefjumst heldur ekki annars nje meir en þess, sem rjett er.