02.05.1924
Neðri deild: 61. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 127 í D-deild Alþingistíðinda. (3011)
135. mál, rýmkun landhelginnar
Jakob Möller:
það þýðir ekkert fyrir hv. þm. V.-Ísf. (ÁÁ) að endurtaka fjarstæðu sína. Jeg get mótmælt henni jafnoft og hann ber hana fram. Það var ekki rjett með farið hjá honum, þegar hann sagði, að í frv. hefði ekki verið um annað að ræða en svifta menn rjetti til fiskiveiða. Það var alls ekki eina rjettindatapið. Brotlegir skipstjórar áttu, eftir því, að missa rjett til þess að fara með skip yfirleitt.