10.04.1924
Neðri deild: 47. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 130 í D-deild Alþingistíðinda. (3018)

128. mál, yfirskoðunarmenn landsreikningsins

Frsm. (Jörundur Brynjólfsson):

Jeg skal geta þess, að þetta, sem jeg tók fram í ræðu minni áðan, hefi jeg nýlega fengið upplýst, og eins það, að það mun vera talsvert mikið verðmæti bundið í þessum lyfjum, en þau munu víða illa geymd, og hefir því mikið eyðilagst, bæði frosið og eins lekið niður.