02.05.1924
Sameinað þing: 4. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 376 í D-deild Alþingistíðinda. (3215)
104. mál, fækkun ráðherra
Jón Kjartansson:
Það er dálítil fyrirspurn. Hv. flm. (MT) mintist á það, að till. væri fram borin í sparnaðarskyni. Jeg vil þá leyfa mjer að spyrja hv flm.: Er það tilgangurinn, að spara fje ríkisins eða spara vinnukraft. Hann vitnaði í það, að aðeins tveir ráðherrar hefðu verið undanfarið. Nú er það vitanlegt, að þá tók annar ráðherranna hálf önnur ráðherralaun. Það yrði þessvegna lítill sparnaður af þessari till. hv. flm., ef hann hugsar sjer þessa leið. Og sje það meiningin, að spara aðeins vinnukraft, er jeg hv. flm. (MT) alveg ósamdóma um, að það sje rjett ráðið, því jeg tel, að vinnukraftur eigi að vera sem bestur og fullkomnastur í stjórn ríkisins. Og ódýrari vinnukraft en þann, er nú er þar, verður ekki unt að fá.