05.05.1924
Sameinað þing: 5. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 420 í D-deild Alþingistíðinda. (3242)

137. mál, íslenskt happdrætti

Fjármálaráðherra (JÞ):

Jeg skal aðeins láta þess getið, að stjórnin mun að sjálfsögðu taka mál þetta til yfirvegunar fyrir næsta þing. En þar í liggur ekki neitt loforð um að leggja frv. til laga um happdrætti fyrir næsta þing. Eins og skiljanlegt er, þá eru ýmsar hliðar á þessu máli, sem fyrst þarf að rannsaka, og verður ekkert sagt að svo stöddu um það, hvaða niðurstöðu stjórnin kann þá að komast að.