25.04.1924
Neðri deild: 55. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 565 í D-deild Alþingistíðinda. (3392)

81. mál, starfsmannahald við landsverslunina og áfengisverslunina

Fyrirspyrjandi (Björn Líndal):

Jeg efast alls ekki um það, að í orði kveðnu sje unnið 7 tíma. En hitt efast jeg um, að fólkið sje alt af við vinnu sína. Að minsta kosti hefi jeg sjeð starfsmenn þessara stofnana úti á götu um miðja daga, og stundum við störf sem eru miður þörf.